Skip to product information
1 of 20

iKamper

Skycamp 4.0 Trio

Regular price 749.900 ISK
Regular price Sale price 749.900 ISK
Með VSK Sendingarkostnaður reiknaður við frágang á pöntun

Skycamp 4.0 Trio hittir beint í mark. Það býður upp á meira innra rými en Duo á sama tíma og það heldur jafnvægi í stærð sem hentar fjölbreyttu úrvali ökutækja, þar á meðal stórum pallbílum, meðalstórum jeppum, crossover-bílum og station-bílum. Trio er með svefnpláss fyrir 3. 

Uppsetningin er fljótleg og einföld. Á örfáum sekúndum opnast tjaldið í þægilegt svefnrými með betra aðgengi, auknu loftflæði og meira nýtanlegu plássi að innan. Stærri inngangur og gluggar skipta miklu máli, sérstaklega þegar þú ert að fara inn og út eða koma þér fyrir yfir nóttina.

Að innan gefur Trio þér þetta auka pláss sem gerir lengri ferðir mun þægilegri. 

Líkt og önnur tjöld í 4.0 línunni hefur efnisval og smíði verið endurbætt í gegn. 

4.0 uppfærslurnar eru einnig til staðar hér: 

RTT Comfort loftdýna með innbygðum 7,5cm svampi. Svefngæði eins og þau gerast best. BreathWeave™ tjaldúkurinn hjálpar til við að minnka raka og viðhalda þægindum við mismunandi aðstæður og árstíðir. Einnig verðum við að minnast á að tjaldið sjálft er mjög hljóðlátt í vindi. Ekki síst vegna DuraCore™ harðskeljarinnar með tvöföldu lagi af einangrun. Skelin er byggð fyrir endingu og hönnuð til að takast á við krefjandi aðstæður og hitabreytingar. Einnig er botninn í 4.0 Trio einangraður með sérstökum ThermaSeal™ kork klæðningu sem einnig kemur í veg fyrir rakamyndun og bætir hljóðvist inn í tjaldinu. 

Innbyggð lýsing er í tjaldinu með mismunandi stillingum og stemningu. 

IKAMPER
Hannað af ásetningi. Byggt til að endast.