Skilmálar á afhendingu vöru

Pöntun er afgreidd úr vefverslun eins fljótt (innan 5 virkra daga) og send með Dropp. Sendingarkostnaður er misjafn eftir landshluta og greiðir kaupandi sendingarkostnað við móttöku vöru.
 
Ath. við gerum ráð fyrir að afhenda stærri vörur sbr. topptjöld og toppgrindur við Álfhellu 4. Hafnarfirði vegna þyngdar, stærðar og kostnaðar á flutningi slíks varnings. Topptjöld og Vagnar aðstoða kaupanda sem hefur ekki tök á að sækja stærri vörurnar að finna bestu og hagkvæmustu flutningsleiðina fyrir og í samráði við kaupenda. (Dropp, Flytjandi eða annara flutningsaðila ef eftir því er óskað) Topptjöld og vagnar býður upp á ásetningarþjónustu á topptjöldum, toppgrindum og þverbogum. Panta þarf sérstaklega tíma í ásetningu.