iKamper
Skycamp 4.0 Quad
Couldn't load pickup availability
Skycamp 4.0 Quad er stærsta útgáfan í nýju 2026 línunni, hönnuð fyrir þá sem leggja áherslu á rými og þægindi. Meira pláss til að slaka á og hentar því einstaklega vel fyrir lengri ferðir eða fyrir þá sem vilja meira svigrúm og aukið svefnpláss. (Svefnpláss fyrir 4)
Uppsetningin er jafn fljótleg og í öðrum Skycamp tjöldum. Á örfáum sekúndum opnast tjaldið í rúmgott svefnsvæði með betra aðgengi og auknu loftflæði. Stærri inngangur og gluggar gera rýmið opnara með meira útsýni.
Að innan finnur þú strax muninn sem aukið pláss skapar. Hvort sem þú vilt teygja úr þér eða geyma meiri búnað inni í tjaldinu, þá gefur Quad þér meira svigrúm og þægindi.
4.0 uppfærslurnar eru einnig til staðar hér:
RTT Comfort loftdýnur með innbygðum 10cm svampi. Svefngæði eins og þau gerast best. Já, ákveðin fullyrðing af okkar hálfu en komdu bara og prófaðu. Við hreinlega fullyrðum það.
BreathWeave™ tjaldúkurinn hjálpar til við að minnka raka og viðhalda þægindum við mismunandi aðstæður og árstíðir. Einnig verðum við að minnast á að tjaldið sjálft er mjög hljóðlátt í vindi.
Ekki síst vegna DuraCore™ harðskeljarinnar með tvöföldu lagi af einangrun. Skelin er byggð fyrir endingu og hönnuð til að takast á við krefjandi aðstæður og hitabreytingar. Einnig er botninn í 4.0 Quad einangraður með sérstökum ThermaSeal™ kork klæðningu sem einnig kemur í veg fyrir rakamyndun og bætir hljóðvist inn í tjaldinu.
Innbyggð lýsing er í tjaldinu með mismunandi stillingum og stemningu.
Share

