Skip to product information
1 of 17

ikamper

X-Cover 2.0 Mini

Regular price 478.000 ISK
Regular price Sale price 478.000 ISK
Með VSK Sendingarkostnaður reiknaður við frágang á pöntun

X-Cover 2.0 Mini er önnur kynslóð af X-Cover línunni. Tjaldið er tveggja manna, mjög lítið og nett og passar á allar gerðir bíla. Hægt er að festa td. hjól, skíði, kayak ofl. ofan á tjaldið. X-Cover hlaut "RedDot" hönunarverðlaunin árið 2019. En alls hefur iKamper hlotið þau verðlaun þrisvar sinnum fyrir framúrskarandi hönnun. 

🔘Tekur þrjár mínútur að tjalda. 

🔘 Hægt að geyma svefnpoka og kodda í skelinni þegar þú ferð á næsta áfangastað.

🔘 Ný svefndýna (6,5 cm) með 9 svæða svefnstuðningi sem dreyfir líkamsþyngd betur og eykur þægindi. Botn dýnunnar er endurhannaður til að sporna við myglymyndun í ákveðnum aðstæðum.

🔘 Framúrskarandi vind og vatnsheldni. Tjaldið er með dökkum poly–bómullar dúk sem tryggir myrkur og andar vel. Nýr litur (Midnight Gray, Granite & Deep Burgundy)


🔘 Hliðargluggar endurhannaðir með nýjum rennilásum, sem einfaldar að opna og loka öllum lögunum. Einnig hægt að nota ysta lag sem gardínu með einu handtaki innan frá.

🔘 Hægt að læsa tjaldinu við þverboga eða toppgrind. 

🔘 Endurbættir YKK rennilásar sem gerir þá bæði sterkari og áreiðanlegri.